Hraðfrystihús Hellissands kaupir nýlegan dragnótabát frá Danmörku

Hraðfrystihús Hellissands hefur nú keypt nýjan bát sem áætlað er að verði afhentur í byrjun desember n.k.

Báturinn er smíðaður í Vestværftet i Hvidesand í Danmörku árið 2019 og er útbúinn bæði til dragnóta og togveiða.

Í bátnum, sem er 33,25 langur og 9,4 metra breiður, er Mitsubishi 750 KW vél og tvær John Deere ljósavélar.

Við óskum HH til hamingju með nýja bátinn.