Hugmyndasamkeppni um nafn á nýtt hús eldri borgara við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík

Snæfellsbær óskar eftir tillögum frá íbúum að nafni á nýtt hús eldri borgara við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík.

Um er að ræða almenna hugmyndasamkeppni og er hún öllum opin. Hugmyndaríkir íbúar Snæfellsbæjar hvattir til að láta ljós sitt skína.

Hægt er að senda inn tillögur í gegnum hlekkinn hér að neðan til og með 28. desember 2023. Öllum er frjálst að senda inn fleiri en eina tillögu.