Hunda- og kattahreinsun í áhaldahúsinu 4. mars

Þann 4. mars verður katta- og hundahreinsun í áhaldahúsinu í Ólafsvík.

  • Hundahreinsun verður miðvikudaginn 4. mars 2020 frá kl. 14:00 - 17:00.
  • Kattahreinsun verður miðvikudaginn 4. mars 2020 frá kl. 17:00 - 19:00.

Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum um slíkt til bæjarskrifstofu.

Eigendum óskráðra hunda og katta er bent á að skrá þá þegar í stað. Viðeigandi eyðublöð má finna hér að neðan.