Hundahreinsun í áhaldahúsinu 6. apríl
06.04.2022 |
Fréttir
Hundahreinsun verður miðvikudaginn 6. apríl 2022 frá kl. 13:00 – 17:00 í áhaldshúsinu í Ólafsvík.
Eigendum hunda sem láta hreinsa og bólusetja hunda sína annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.
Eigendum óskráðra hunda er bent á að skrá þá þegar í stað. Eyðublað og samþykkt um hunda- og kattahald Snæfellsbæjar má nálgast hér að neðan.