Hvernig er lífið í Snæfellsbæ? Segðu þína skoðun

Nánar um könnunina:

Könnunin Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla. Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Þessi könnun nær til byggðakjarna með færri en tvö þúsund íbúa utan suðvestursvæðis landsins. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni og svarar spurningum í síma 661 6099 eða í tölvupósti thoroddur@unak.is. Þátttaka í könnuninni er að sjálfsögðu frjáls og svarendum ber hvorki skylda til að svara einstökum spurningum eða könnuninni í heild. Könnunin er unnin í samræmi við lög 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sjá nánar hér. Smelltu hér til að taka þátt SURVEY IN ENGLISH ANKIETA W JĘZYKU POLSKIM