Íbúafundur um sameiningartillögu fimmtudaginn 27. janúar
24.01.2022 |
Fréttir, Sameiningarviðræður
Boðað er til íbúafundar til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar, sem kosið verður um þann 19. febrúar næstkomandi. Íbúafundurinn verður haldinn fimmtudaginn 27. janúar frá kl. 20:30 - 22:00, en í ljósi samkomutakmarkana verður fundurinn haldinn á fjarfundarkerfinu Zoom.
Tengil inn á fundinn og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni snaefellingar.is.