Íbúaþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um Sóknaráætlun Vesturlands
Íbúaþing - Sóknaráætlun Vesturlands 2025 - 2029
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir íbúaþingi miðvikudaginn 18. september um endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands.
Þingið fer fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og hefst kl. 16 og mun standa til kl.18:00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku.
Markmið þingsins er að fá íbúa á Vesturlandi til að koma saman, skiptast á skoðunum og forgangsraða áherslum um hvernig þau vilja sjá Vesturland þróast.
Afrakstur þingsins mun verða leiðarljós við frekari vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2025-2029.
Verum með og tökum þátt. Það er leiðin til þess að hafa áhrif á hvernig Vesturland þróast.
Við bjóðum alla Vestlendinga velkomna á íbúaþingið.
Boðið er upp á barnahorn, þar sem tekið verður á móti börnum í Kvikunni, skapandi rými Menntaskóla Borgarfjarðar.
Grillveisla að þingi loknu!
Staðsetning: Hjálmaklettur í húsnæði Menntaskólans, Borgarbraut 54, Borgarnes
Skráning: