Innritun í tónlistarskóla fyrir haustönn 2020

Innritun í skólavistun Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fyrir haustönn 2020 fer fram í Ólafsvík frá 19. ágúst til 26. ágúst. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans að Hjarðartúni 6. Einnig er hægt að hringja í síma 433-9928 eða senda tölvupóst: tonlistarskoli@snb.is

Nemendur sem eru að ljúka árið 2020 þurfa að staðfesta áframhaldandi skólavistun fyrir haust 2020, og ef breytingar eru á hljóðfæranámi.

Kennsla hefst n.k.miðvikudag, 26.ágúst.

Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu, þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra.

Hálft nám reiknast sem 60% af fullu gjaldi.

Í þeim tilvikum sem systkini yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur skal nema 25% fyrir annað systkini og 50% fyrir þriðja systkini. Afslátturinn reiknast ávallt af ódýrasta náminu.

Systkinaafsláttur á eingöngu við um systkini, ekki frændsystkini, þó svo lögheimili og greiðandi sé sá sami.

Athugið: Við innritun hefur forráðamaður skuldbundið sig til að greiða skólagjöld út önnina.

Gjaldskrá tónlistarskóla Snæfellsbæjar