Innritun í tónlistarskóla fyrir vorönn 2020
16.12.2019 |
Fréttir
Innritun í skólavistun Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fyrir vorönn 2020 stendur nú yfir. Umsóknum skal skila á skrifstofu tónlistarskólans að Hjarðartúni 6 í Ólafsvík. Einnig er hægt að hringja í síma 433 - 9928 eða senda tölvupóst: tonlistarskoli@snb.is
Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu, þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra.
Ath: Hálft nám reiknast sem 60% af fullu gjaldi.
Í þeim tilvikum sem systkini yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur skal nema 25% fyrir annað systkini og 50% fyrir þriðja systkini. Afsláttur reiknast ávallt af ódýrasta náminu.
Systkinaafsláttur á eingöngu við um systkini, ekki frændsystkini, þó svo lögheimili og greiðandi sé sá sami.
A.T.H. Við innritun hefur forráðamaður skuldbundið sig, að greiða skólagjöld út önnina.
Gjaldskrá tónlistarskóla Snæfellsbæjar