Íþróttahús og sundlaug nýr sölustaður strætómiða í Ólafsvík
08.03.2021 |
Fréttir
Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar nýr sölustaður strætómiða í Ólafsvík.
Farmiðaspjöld í Strætó hafa verið seld í Átthagastofu Snæfellsbæjar, en frá og með 8. mars 2021 verður breyting á og mun sala á farmiðum færast yfir í afgreiðslu íþróttahúss og sundlaugar Snæfellsbæjar.
Farmiðaspjöld verður einnig áfram hægt að kaupa í Ráðhúsi Snæfellsbæjar líkt og verið hefur.