Jólahús Snæfellsbæjar 2021 - taktu þátt!

Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskar eftir tillögum frá íbúum um jólahús Snæfellsbæjar 2021.

Hægt er að senda inn tillögur í gegnum hlekkinn hér að neðan til og með 20. desember 2021. Að þeim tíma loknum fer menningarnefnd yfir niðurstöður og verða sigurvegarar kynntir á vefsíðu Snæfellsbæjar þann 22. desember. Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál og ekki verður hægt að persónugreina innsendar tillögur. Athugið að það er ekki hægt að kjósa oftar en einu sinni í hverju tæki.