Jólahús Snæfellsbæjar 2023 er Lækjarbakki 1 á Arnarstapa

Jólahús Snæfellsbæjar 2023 er Lækjarbakki 1 á Arnarstapa.
 
Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskaði fyrr í desember eftir tillögum frá íbúum um hús í Snæfellsbæ sem þykir fallega skreytt í tilefni jólahátíðarinnar.
 
Það kom fljótt í ljós við yfirferð á innsendum tillögum frá íbúum hvert jólalegasta húsið í Snæfellsbæ er að þessu sinni. Mikill meirihluti var sammála um að Sigurlaug Konráðsdóttir og Haraldur Yngvason á Lækjarbakka 1 á Arnarstapa skyldu fá viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu þetta árið.
 
Formaður menningarnefndar, Ingunn Ýr Angantýsdóttir, færði hjónunum viðurkenningu í fallegu vetrarveðri í sannkölluðu jólalandi á Arnarstapa.
 
Við óskum þeim til hamingju og sendum bestu þakkir á alla sem gleðja nágranna og vini með fallegum jólaskreytingum.