Jólahús Snæfellsbæjar 2023 - taktu þátt

Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskar eftir tillögum frá íbúum um jólahús Snæfellsbæjar 2023.

Opið verður fyrir innsendar tillögur til miðnættis 21. desember 2023. Að þeim tíma loknum fer menningarnefnd yfir niðurstöður og verða sigurvegarar kynntir á miðlum Snæfellsbæjar þann 23. desember.

Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál og ekki verður hægt að persónugreina innsendar tillögur. Athugið að það er ekki hægt að kjósa oftar en einu sinni í hverju tæki.