Jólaljós tendruð sunnudaginn 1. desember í Ólafsvík

Jólaljós verða tendruð við hátíðlega athöfn fyrsta sunnudag í aðventu, 1. desember, í Snæfellsbæ.

þessu sinni verður nýr háttur hafður á skipulagi viðburðarins og skipulagður einn stærri jóla- og aðventuviðburður þar sem fjölskyldur sameinast um tendra jólaljósin og dansa í kringum jólatréð í Ólafsvík. Á næsta ári verður leikurinn endurtekinn og viðburðurinn haldinn á Hellissandi.

Viðburðurinn hefst kl. 16:00. Menningarnefnd Snæfellsbæjar klæðir Pakkhúsið í jólabúning og verður húsið opið gestum og gangandi. Í Pakkhúsinu verða ljúffengar ristaðar möndlur og rjúkandi heitt kakó frá Lilju á Skerinu og notaleg jólastemning.

Jón Haukur syngur jólalög, jólasveinar koma í heimsókn og dansað verður í kringum jólatréð áður en bræðurnir rauðklæddu seilast í pokana eftir góðgæti fyrir yngri kynslóðina.

Verið velkomin í huggulega fjölskyldu- og aðventustund í aðdraganda jóla.