Jólaljós tendruð sunnudaginn 3. desember
27.11.2023 |
Fréttir
Allir bæjarbúar eru velkomnir að eiga notalega stund sunnudaginn 3. desember, fyrsta sunnudag í aðventu, þegar jólaljós verða tendruð á jólatrjám á Hellissandi og í Ólafsvík.
- Á Hellissandi verða ljósin tendruð kl. 16:00.
- Í Ólafsvík verða ljósin tendruð kl. 17:30.
Jólaljósin tendruð, jólasveinar koma í heimsókn, lifandi tónlist, dansað í kringum jólatré. Velkomin í huggulega fjölskyldustund í aðdraganda jóla.
Gleðilega hátíð!