Jólatré hirt við lóðarmörk 7. janúar
07.01.2025 |
Fréttir
Jólatré verða hirt í Ólafsvík, Rifi og á Hellissandi í dag, 7. janúar. Þeir íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir að setja tré út við lóðarmörk.
Snæfellsbær hvetur bæjarbúa jafnframt til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda og fleira sem hefur fallið til eftir nýárs- og þrettándagleði.
Ljósmynd: Joshua Hanson, Unsplash