Karlkyns sundlaugarvörður óskast til starfa við sundlaug Snæfellsbæjar í sumar

Laust er til umsóknar tímabundið sumarstarf karlkyns sundlaugarvarðar við Sundlaug Snæfellsbæjar. Um 100% starf í vaktavinnu er að ræða.

Starfssvið:

  • Öryggisvarla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
  • Klefavarsla og baðvarsla.
  • Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund.
  • Tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2022. Starfstímabil er frá 14. júní til 25. ágúst 2022.

Umsækjendur þurfa að ljúka námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Frekari upplýsingar veitir Laufey Helga Árnadóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, í síma 433 9912 eða á laufey@snb.is. Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið laufey@snb.is.