Karlkyns sundlaugarvörður óskast til starfa við sundlaug Snæfellsbæjar í sumar
14.03.2023 |
Fréttir, Laus störf
Laust er til umsóknar tímabundið sumarstarf karlkyns sundlaugarvarðar við Sundlaug Snæfellsbæjar. Um 100% starf í vaktavinnu er að ræða.
Starfssvið:
- Öryggisvarla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
- Klefavarsla og baðvarsla.
- Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni.
- Rík þjónustulund.
- Tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2023. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 20. maí 2023.
Umsækjendur þurfa að ljúka námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Frekari upplýsingar veitir Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, í síma 433 9912 eða á kristfridur@snb.is. Umsóknir berist í gegnum starfasíðu Snæfellsbæjar hjá Alfreð.