Kjörskrár vegna sameiningarkosninga 19. febrúar 2022

Þann 19. febrúar nk. fara fram kosningar um tillögu að sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Í Eyja- og Miklaholtshreppi eru 83 einstaklingar á kjörskrá og í Snæfellsbæ eru á kjörskrá 1.174 einstaklingar.

Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum hlutaðeigandi sveitarfélaga öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma frá 5. febrúar fram að kjördegi. Athugasemdir við kjörskrá skal send hlutaðeigandi sveitarstjórn.

Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í sameiningarkosningunum. Nánar á vefsíðunni snaefellingar.is. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum:
  • Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

  • Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

  • Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 09:30 til 13:00.

  • Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.

  • Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2, mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 til 15.00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

  • Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 en til kl. 15:00 á föstudögum.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

Stykkishólmi, 14. janúar 2022

Sýslumaðurinn á Vesturlandi