Kjörstaðir sameiningarkosninga 19. febrúar

Laugardaginn 19. febrúar næstkomandi fara fram kosningar um sameiningu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps.

Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi. Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna. Einstaklingar geta athugað hvort þeir séu á kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Kjörfundir fara fram í hvoru sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:

Kjörfundir í Snæfellsbæ:

    • Grunnskólinn í Ólafsvík frá kl. 10 til 18
    • Grunnskólinn á Hellissandi frá kl. 10 til 18
    • Grunnskólinn á Lýsuhóli frá kl. 10 til 18

Kjörfundur í Eyja- og Miklaholtshrepp fer fram í íþróttahúsi Laugargerðisskóla frá kl. 10 til 18.

Aðsetur kjörstjórnar verður á viðkomandi kjörstað á kjördag.

Talning atkvæða fer annars vegar fram í íþróttahúsi Laugargerðisskóla og hins vegar í Grunnskólanum í Ólafsvík og hefst eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað. Verða atkvæða talin og úrslit birt í hvoru sveitarfélagi og á snaefellingar.is.

Um undirbúning, framkvæmd og frágang sveitarstjórnarkosninga fer eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

Kjörstjórnir Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps.