Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli í Snæfellsbæ

Snæfellsbær áformar að taka tilboði Fjarskiptasjóðs um að ljósleiðaravæða þau heimili í þéttbýli Snæfellsbæjar sem eru ekki nú þegar komin með ljósleiðaratengingu.

Áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi:

  1. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum. Lista yfir styrkhæf heimilisföng er hægt að nálgast hjá Snæfellsbæ,
  2. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga geta haft samband við Snæfellsbæ fyrir 25. júlí n.k. í netfangið kristinn@snb.is

Kristinn Jónasson

bæjarstjóri