Krabbameinsfélag Snæfellsness heldur fyrirlestur um áhrif veikinda á fjölskyldur

Krabbameinsfélag Snæfellsness heldur fyrirlestur um áhrif veikinda á fjölskyldur mánudaginn 4. nóvember. Fyrirlesturinn verður haldinn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og hefst kl. 18:00.

Tilkynning frá Krabbameinsfélaginu:

Vegna fjölda áskorana höfum við fengið Þorra Snæbjörnsson sálfræðing hjá Krabbameinsfélagi Íslands til þess að koma aftur til okkar og halda fyrirlestur um áhrif veikinda á fjölskyldur. Fyrirlesturinn verður haldinn mánudaginn 4. nóvember kl. 18:00 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Þorri mun fjalla um þær áskoranir sem aðstandendur og krabbameinsgreindir standa gjarnan frammi fyrir þegar ástvinur greinist með krabbamein. Rætt verður um hvað er eðlilegt að upplifa í hugsunum og tilfinningum í þessum aðstæðum. Farið verður yfir þætti sem mikilvægt er að hafa í huga til að hlúa að sér og sínum og styrkja sig í aðstæðunum. Boðið verður upp á fyrirspurnir og umræður.

Verið hjartanlega velkomin!

Krabbameinsfélag Snæfellsness býður upp á súpu og brauð ásamt kaffi og sætum mola.