Laufey Helga nýr íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar
25.03.2020 |
Fréttir
Laufey Helga Árnadóttir hefur verið ráðin í starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar. Laufey Helga hefur þegar hafið störf en hún tekur formlega við starfinu af Sigrúnu Ólafsdóttur þann 1. apríl nk.
Laufey Helga er fædd og uppalin í Snæfellsbæ og hefur starfað hjá Hafnarsjóði Snæfellsbæjar undanfarin ár. Í gegnum tíðina hefur hún látið til sín taka í ýmsu félagsstarfi og viðað að sér fjölbreyttri reynslu af íþrótta- og æskulýðsstarfi, m.a. sem framkvæmdastjóri Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu.
Hún er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.ed. í menntunarfræði frá Háskólanum á Akureyri.
Við óskum Laufey Helgu til hamingju með nýja stöðu og bjóðum hana velkomna til nýrra starfa hjá Snæfellsbæ.