Laus staða á höfninni

Hafnir Snæfellsbæjar auglýsa hér með eftir hafnarstarfsmanni til starfa við Ólafsvíkurhöfn. Viðkomandi mun einnig þurfa að vinna við aðrar hafnir Snæfellsbæjar. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst og vera orðnir 20 ára gamlir.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Dala og Snæfellsnessýslu og Sambands Íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2019 og skulu umsóknir sendar til hafnarstjóra.

Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri í síma 433-6922 og 863-1153, netfang bjorn@snb.is. Ljósmynd: Ólafsvíkurhöfn, Sindri Snær Matthíasson