Laus staða á leikskólanum Krílakoti

Snæfellsbær auglýsir til umsóknar laust starf á leikskólanum Krílakoti.

Auglýst er eftir starfsmanni sem hefur áhuga á að vinna með börnum, er skapandi og ábyrgðafull/ur í starfi. Viðkomandi starfsmaður þarf að vera námsfús og sveigjanlegur með fullt af þolinmæði. Hann/hún þarf að geta stýrt samverustundum sem og hópastarfi, lesið og sungið. Því þarf íslenskukunnátta að vera viðunandi.

Starfshlutfall er 100% og vinnutími frá 8:00 - 16:00 alla virka daga. 

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2019. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf um miðjan apríl.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.

Frekari upplýsingar veita Inga Stefánsdóttir og Hermína í síma 433 6925 á milli 9:00 - 12:00. Umsóknarform má finna á meðfylgjandi hlekk:

Í lögum um leikskóla nr. 90/2008 segir í 3. mgr. 6gr: „Óheimilt er að ráða til starfa við leikskóla einstakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakarvottorð eða heimilid leikskólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.“