Laus staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Snæfellsbæjar

Laus er staða stuðningsfulltrúa við skólann á starfstöðinni í Ólafsvík, í 75% stöðugildi.

Starfssvið starfsmanns:

  • Leiðbeinir þeim í samskiptum við aðra nemendur og starfsfólk.
  • Vinnur að uppeldi og menntun nemenda.
  • Aðstoða nemendur í leik og starfi.
  • Ýmis önnur verkefni sem til falla hverju sinni.

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði.

Borgað er samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 19. júní 2023.

Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894 – 9903. Umsóknir skal senda til skólastjóra á netfangið hilmara@gsnb.is.