Laus störf á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliðum/almennum starfsmönnum í umönnun.

Um er að ræða tvö störf, 70-80% hvort starf. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Á Jaðri eru 16 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Aðstaða íbúa og starfsfólk er mjög góð. Mjög góð vinnuaðstaða er fyrir hendi og góður starfsandi.

Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2023.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Jaðri.

Umsóknir berist í gegnum starfasíðu Snæfellsbæjar hjá Alfreð.