Laus störf í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða á Hellissand í 100% stöðugildi og stuðningsfulltrúa í Ólafsvík í 75% stöðugildi.

Starfssvið skólaliða:

  • Þrif á skólahúsnæði og skólalóð
  • Gæsla í frímínútum og matartímum
  • Leiðbeina nemendum í leik og starfi
  • Ýmis önnur verkefni sem falla til

Starfssvið stuðningsfulltrúa:

  • Leiðbeina nemendum í samskiptum
  • Vinna að uppeldi og menntun nemenda
  • Aðstoða nemendur í leik og starfi
  • Ýmis önnur verkefni sem falla til

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði

Laun skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur til 10. júní 2024. Sótt er um störfin á ráðningarvef Snæfellsbæjar.

Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894 9903 og á netfanginu hilmara@gsnb.is.