Laus störf við afleysingar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsmönnum í afleysingar frá miðjum septembermánuði. Um vaktavinnu er að ræða. 

Hæfniskröfur:
  • Kunnátta í íslensku er skilyrði
  • Jákvæðni og stundvísi
  • Áhugi á samskiptum við íbúa og umönnun aldraðra

Á Jaðri er starfsumhverfi gott og gefandi.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.

Frekari upplýsingar veitir Inga Kristinsdóttir, forstöðumaður Jaðars, í síma 433–6933 eða á inga@snb.is.