Laust starf í upplýsingamiðstöð Snæfellsbæjar sumarið 2021
06.04.2021 |
Fréttir
Snæfellsbær óskar eftir að ráða starfsmann til starfa í upplýsingamiðstöð Snæfellsbæjar í Átthagastofu sumarið 2021.
Hæfniskröfur:- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Góð þekking á svæðinu og nærumhverfi.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Góð tök á ensku og íslensku. Önnur tungumál eru kostur.
- Stundvísi og jákvæðni.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.
Upplýsingar veitir Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, í síma 433-6900 og á heimir@snb.is.Vinsamlegast sendið umsóknir á ofangreint netfang.