Leikfangahappdrætti Lionsklúbba 23. og 24. desember

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbanna eru óneitanlega fastur liður í jólahaldinu hér í Snæfellsbæ og á fjölda heimila má segja að jólin komi ekki fyrr en farið hefur verið í Klif eða Röstina með nokkra miða í hönd og eftirvæntingu í farteskinu.

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga verður að vanda á Þorláksmessu og hefst kl. 17:00 í Röstinni á Hellissandi.

Happdrættismiðar eru seldir í Hraðbúðinni og Smiðjunni Fönix. Auk þess verður að hægt að kaupa miða í Röstinni frá kl. 16:00-17:00 á Þorláksmessu.

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur verður haldið á aðfangadagsmorgun og hefst kl. 11:00 í Klifi í Ólafsvík.

Happadrættismiðar eru seldir í Versluninni Hrund, Voot, Sjoppunni og Kassanum.