Leikfangahappdrætti Lionsklúbba Ólafsvíkur og Nesþinga á Netinu

Á fjölda heimila í Snæfellsbæ koma jólin ekki fyrr en farið hefur verið á árleg leikfangahappdrætti Lionsklúbbanna. Leikfangahappdrættin eru ávallt vel sótt enda veglegir vinningar í boði og mikil tilhlökkun hjá yngri kynslóðinni ár hvert.

Í ár verður hins vegar breyting á framkvæmd happdrættis vegna samkomutakmarkana og engir viðburðir haldnir í félagsheimilunum Röst eða Klifi. Strákarnir í Lionsklúbbunum haga þó seglum eftir vindi og ætla að streyma gleðinni beint heim í stofu til okkar hinna. Ekki að spyrja að því.

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga verður streymt á Youtube kl. 17:00 á Þorláksmessu. Streymi hefst kl. 16:00 en byrjað verður að draga kl. 17:00.

Hér má finna streymi: Youtube

Þess er beint til að vinningshafa að sækja vinninga að loknum úrdrætti og streymi er lokið.

Vinningshafar ganga inn í Röstina að framan, sækja vinninga í salinn og fara út um hliðarhurð. Þetta er gert til að takmarka dvöl einstaklinga í húsinu og koma í veg fyrir brot á samkomutakmörkunum.

Happdrættismiðar eru seldir í Hraðbúðinni. Auk þess verður að hægt að kaupa miða í Röstinni frá kl. 15:00-17:00 á Þorláksmessu.

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur verður streymt á Youtube kl. 10:00 á aðfangadagsmorgun. Streymi hefst kl. 9:00 en byrjað verður að draga kl. 10:00.

Hér má finna streymi: Youtube

Þess er beint til að vinningshafa að sækja vinninga að loknum úrdrætti og streymi er lokið. Útfærsla á dreifingu vinninga verður kynnt þegar nær dregur.

Miðar seldir í Versluninni Hrund, Olís, Söluskála ÓK, Kassanum, Steinprent og í síma 436 1617. 

Við vekjum athygli á því að mörg nýleg sjónvörp eru með innbyggðan Youtube-spilara og þar er hægt að finna báða Lionsklúbbana. Nýlegir myndlyklar frá Símanum eru einnig með innbyggðan Youtube-spilara.