Leikjanámskeið Víkings Ó. 2019

Leikjanámskeið Víkings Ólafsvíkur hefst mánudaginn 3. júní 2019 kl. 9:00. Námskeiðið stendur í tvær vikur og verður ýmislegt brallað, m.a. farið á hestbak, í sund, heimsókn til björgunarsveitarinnar o.fl. Því er beint til foreldra og forráðamanna að klæða börn eftir veðri og senda þau með hollt og gott nesti með sér á námskeiðið.

--

Dagskrá fyrri viku leikjanámskeiðsins:

Mánudagur 3. júní - Skráning og leikir Þriðjudagur 4. júní - Fossa- og skógarferð Miðvikudagur 5. júní - Sund Fimmtudagur 6. júní - Hestbak Föstudagur 7. júní - Heimsókn til björgunarsveitarinnar

--

Dagskrá seinni viku leikjanámskeiðsins:

Mánudagur 10. júní - FRÍ / Hvítasunnuhelgi Þriðjudagur 11. júní - Sveitaferð Miðvikudagur 12. júní - Fjöruferð Fimmtudagur 13. júní - Ratleikur Föstudagur 14. júní - Lokahóf og grill