Leikskólakennarar óskast til starfa á Kríuból
18.08.2021 |
Fréttir
Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa á Kríubóli.
Um er að ræða tvær 50% stöður sem deila með sér sitthvorri vaktinni. Fyrirkomulagið yrði þannig að aðra hverja viku yrði vinnutími 8:00 - 12:00 og hina vikuna frá 12:00 - 16:00.
Menntunar- og hæfniskröfur- Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
- Leikskólakennararéttindi
Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til grein aað ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.
Viðkomandi þarf að búa yfir:- Góðri íslenskukunnáttu
- Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
- Góðum samskiptahæfileikum
- Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
- Góðri færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
- Hreinu sakarvottorði
Leikskólastjóri áskilur sér rétt að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Samflot bæjarstarfsmannafélag.
Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir, leikskólastjóri, og Linda Rut Svansdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 433 6926 á milli kl. 9:00 - 14:00 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is.