Leikskólakennarar óskast til starfa á Kríuból

Leikskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausar stöður leikskólakennara á Leikskóla Snæfellsbæjar, Kríubóli. Um 100% störf er að ræða frá 10. ágúst 2023. Vinnutími er frá 8:00 - 16:00.

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða einstaklingar með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu, kemur til greina að ráða leiðbeinendur.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
  • Leikskólakennararéttindi

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til grein aað ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.

Viðkomandi þarf að búa yfir:

  • Góðri íslenskukunnáttu
  • Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
  • Góðum samskiptahæfileikum
  • Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
  • Góðri færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Hreinu sakarvottorði

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2023.

Leikskólastjóri áskilur sér rétt að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.

Athygli er vakin á því að starfið hentar öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir, leikskólastjóri, og Linda Rut Svansdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 433 6926 á milli kl. 9:00 – 14:00 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is. Umsóknir berist í gegnum starfasíðu Snæfellsbæjar hjá Alfreð.