Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir leikskólakennara í fullt starf
07.04.2021 |
Fréttir
Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leikskólakennara. Um 100% starf er að ræða frá og með 26. apríl 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur:- Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
- Leikskólakennararéttindi
Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.
Viðkomandi þarf að búa yfir:- Góðri íslenskukunnáttu
- Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
- Góðum samskiptahæfileikum
- Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
- Góðri færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
- Hreinu sakarvottorði
Laun eru greidd skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og starfið hentar öllum kynjum.
Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir, leikskólastjóri, í síma 433 6925 eða Hermína Lárusdóttir, aðstoðarleikskólastjóri og sérkennslustjóri.