Lífshlaupið 2019 - Snæfellsbær hvetur til þátttöku
05.02.2019 |
Fréttir
Snæfellsbær hvetur alla til þátttöku í Lífshlaupinu sem hefst 6. febrúar 2019.
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:- vinnustaðakeppni frá 6. febrúar – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
- framhaldsskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
- grunnskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið