Litla-Tunga, lýsing og matslýsing vegna fyrirhugaðs nýs deiliskipulags

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Snæfellsbæjar samþykkti lýsingu og matslýsingu á fundi sínum þann 3. júlí 2024 fyrir gerð nýs deiliskipulags í landi Litlu-Tungu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til er um 17,4 ha landsvæði í landi Litlu-Tungu í Snæfellsbæ. Litla-Tunga er ný jörð með engum húsakosti. Litla-Tunga var stofnuð úr landi Ytri-Tungu og Grenhóls en deiliskipulagið mun teygja sig inn á land Ytri-Tungu og Grenhóls. Um er að ræða uppbyggingu innan skipulagssvæðisins sem snýr að bættri ferðamannaþjónustu. Í deiliskipulagi mun vera gert ráð fyrir salernisbyggingu, þjónustubyggingu, göngustígum og bílastæðum.

Hægt er að skoða lýsinguna og matslýsinguna á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmeri: 857/2024.

Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir og/eða umsagnir vegna lýsingar fyrirhugaðs deiliskipulags frá 11. júlí 2024 til og með 1. ágúst 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á www.skipulagsgatt.is á málsnúmer: 857/2024.

Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar