Ljósmyndasamkeppni Snæfellsbæjar 2023

Snæfellsbær efnir til ljósmyndasamkeppni í annað skipti.

Menningarnefnd Snæfellsbæjar heldur utan um verkefnið ásamt markaðs- og upplýsingafulltrúa og hefur verið ákveðið að þemað samkeppninni verði menning og mannlíf í Snæfellsbæ.

Mögulegt er að senda inn myndir frá 15. júní til og með 31. ágúst 2023. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar.

Að keppni lokinni verða allar myndir til sýnis á vefsíðu Snæfellsbæjar og með þátttöku í ljósmyndasamkeppninni veita þátttakendur leyfi til þess að myndirnar verði notaðar sem kynningarefni fyrir Snæfellsbæ.

Snæfellsbær hvetur íbúa og aðra sem leið eiga um sveitarfélagið til að taka þátt, deila myndum sem víðast á samfélagsmiðlum og senda á neðangreint netfang til Snæfellsbæjar.

Það geta allir tekið þátt!

Reglur:

  • Þema keppninnar: Menning og mannlíf í Snæfellsbæ.
  • Mynd verður að vera tekin innan sveitarfélagsmarka Snæfellsbæjar.
  • Ekki er heimilt að senda inn myndir sem bundar eru höfundarrétti annars en þátttakanda.
  • Hver þátttakandi má senda inn að hámarki fimm myndir.
  • Senda myndir á ljosmyndasamkeppni@snb.is.
  • Skilafrestur er til miðnættis 31. ágúst 2023.