Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.  Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Umsóknarfrestur er til 9. mars 2021. Umsóknum er skilað rafrænt. Opnað verður fyrir umsóknir þann 11. febrúar á eyðublaðavef stjórnarráðsins Nánar um Lóu