Lokað á starfsstöð Terra undir Enni þriðjudaginn 20. desember

Terra kemur því á framfæri að starfsstöð undir Enni í Ólafsvík verður lokuð í dag, þriðjudaginn 20. desember, vegna veðurs. Opið næst á fimmtudaginn frá kl. 15 – 18.

Jafnframt vill Terra koma á framfæri hvenær íbúar geta búist við því að sorp verði hirt fyrir hátíðarnar. Eru íbúar vinsamlega beðnir um að moka frá sorptunnum til að auðvelda framgang.

Sorphirða fyrir jól:

Miðvikudagur 21. desember - Ólafsvík og Fróðárhreppur

Fimmtudagur 22. desember - Hellissandur og Rif (mögulega Staðarsveit og Breiðuvík líka)

Föstudagur 23. desember - Staðarsveit og Breiðuvík