Lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september

Snæfellsbær endurtekur leikinn frá síðasta ári og býður í gönguferðir í samstarfi við Ferðafélag Íslands alla miðvikudaga í september. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60 - 90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur í september, fara út í náttúruna og njóta náttúrufegurðarinnar sem við erum svo lánsöm að búa við.

Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 (nánari tímasetning við hverja göngu ef þarf að keyra á staðinn).

--

Miðvikudagur 4. september Svöðufoss

Mæting á bílaplanið við Svöðufoss kl. 18:00

Fararstjóri: Árni Guðjón Aðalsteinsson

Miðvikudagur  11. september Haukabrekka

Lagt af stað frá íþróttahúsinu á Hellissandi kl 17:35 og frá íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 17:45

Um að gera að safnast saman í bíla

Fararstjóri: Árni Guðjón Aðalsteinsson

Miðvikudagur 18. september Seljadalur

Lagt af stað frá íþróttahúsinu á Hellissandi kl 17:35 og frá íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 17:45

Um að gera að safnast saman í bíla

Fararstjóri:  Árni Guðjón Aðalsteinsson

Miðvikudagur 25. september Búðarklettur

Lagt af stað frá íþróttahúsinu á Hellissandi kl 17:35 og frá íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 17:45

Um að gera að safnast saman í bíla

Fararstjóri:  Árni Guðjón Aðalsteinsson