Málþing um UNESCO vistvang á Snæfellsnesi 12. apríl 2023

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og Snæfellsjökulsþjóðgarður bjóða til málþings í nýju Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi miðvikudaginn 12. apríl 2023.

Til umfjöllunar verður UNESCO Man and Biosphere-verkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Nú þegar hafa yfir 700 svæði, í 124 löndum, uppfyllt skilyrði til að komast í þennan hóp. MAB svæði búa yfir náttúruminjum og vistkerfum sem hafa mikla sérstöðu og alþjóðlegt verndargildi. Þar er unnið eftir samfélagssáttmála; milli atvinnulífs, íbúa og stjórnsýslueininga. Um er að ræða vettvang fyrir miðlun þekkingar og fræðslu um sjálfbæra nýtingu auðlinda og samfélagslega þátttöku. Sýna þarf fram á stjórnunaráætlun, breiða þátttöku samfélagsins og áætlun um fræðslu og rannsóknir. Drifkraftur einkennir samfélagið á Snæfellsnesi sem vill áfram vera leiðandi á sviði samstarfs og umhverfismála. Vilji er til þess frá heimamönnum að Snæfellsnes verði fyrsta UNESCO Man and Biosphere svæðið á Íslandi.

Dagskrá:

Kl. 10:00 Rúta með sögufylgd um nærumhverfið fer frá Þjóðgarðsmiðstöðinni.
Kl. 12:30 - 13:30 Hádegismatur í félagsheimilinu Röst á Hellissandi.
Kl. 14:00 - 16:30 Ráðstefna í Þjóðgarðsmiðstöðinni
Þörf er á að bóka sæti í rútu sem og í hádegismat. Skráning ekki síðar en á miðnætti 11. apríl í ragnhildur@snaefellsnes.is

Öll velkomin.

Ítarefni: