Menningarnefnd tekur þátt í aðventugleði í Snæfellsbæ
13.11.2024 |
Fréttir
Verslanir og þjónustuaðilar í Ólafsvík, Hellissandi og Rifi taka höndum saman þann 5. desember nk. og bjóða til aðventugleði. Er þetta fjórða árið í röð sem viðburðurinn er haldinn.
Eins og segir í viðburði á Facebook hefur verið mikið líf í bænum á þessum viðburði síðustu ár og farin að skapast yndisleg hefð sem hringir inn jólin hjá mörgum hér í bæjarfélaginu.
Menningarnefnd Snæfellsbæjar tekur að vanda þátt í gleðinni og býður félagasamtökum og öðrum áhugasömum sem vilja taka þátt í þessum skemmtilega degi aðstöðu til að selja vörur. Skráning og nánari upplýsingar á netfanginu menningarnefnd@snb.is.
Öll velkomin.