Mögulegar rafmagnstruflanir á Snæfellsnesi

Tilkynning frá RARIK:

Komið gæti til rafmagnstruflana á Snæfellsnesi sem verður í eyjakeyrslu frá kl. 07:30 til 18:30 mánudag til föstudags á tímabilinu 27. ágúst til 12. september vegna vinnu Landsnets á Vegamótalínu VE1.

Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.