Nýja gervigrasið í Ólafsvík
04.06.2018 |
Fréttir
Það má segja að veðráttan hafi ekki leikið við okkur frá áramótum - allavega ekki þegar kom að framkvæmdum við nýja gervigrasvöllinn í Ólafsvík. Vegna kulda og snjóþunga, og svo seinna í vor vegna vætu og vinda, hafa framkvæmdir gengið hægar en vonir stóðu til. Nú sér hins vegar fyrir endann á þessum framkvæmdum og stendur til að taka völlinn í notkun í næstu viku, en fyrsti heimaleikur mfl. Víkings er fyrirhugaður miðvikudaginn 13. júní n.k.
Meðfylgjandi myndir tók Þröstur Albertsson með dróna, á sjómannadaginn, sunnudaginn 3. júní.