Nýtt deiliskipulag í landi Axlar, Snæfellsbæ

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 3. júlí 2024 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi í landi Axlar í samræmi við 1. mgr. 41. gr skipulagslaga.

Svæðið sem deiliskipulagið nær til er 66 ha og eru innan þess verslunar- og þjónustureitirnir VÞ-27, VÞ-28 og VÞ-33 samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Þar er nú íbúðarhús ásamt húsnæði sem nýtt eru undir þjónustu í formi 7 herbergja gistihúss og jógaiðkun. Í tillögunni er gert ráð fyrir nýjum byggingarreit undir húsnæði fyrir jógaiðkun austan megin við Axlarhól, innan VÞ-33. Húsgrunnur stendur vestast í húsþyrpingunni við Öxl en þar er áætlað að koma aftur fyrir frístundahúsi sem gæti nýst til útleigu fyrir ferðamenn.

Gögn eru frá Urban arkitektum: Greinargerð, deiliskipulagsuppdráttur í mælikvarða 1:10.000 og skýringaruppdrættir í mælikvarða 1:500. Í greinargerð er gerð grein fyrir umhverfisáhrifum tillögunnar.

Hægt er að skoða tillöguna frá 11. júlí – 22. ágúst 2024 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmeri 412/2024. Einnig liggur tillagan frammi í Ráðhúsi Snæfellsbæjar að Klettsbúð 4, 360 Hellissandi og á heimasíðu Snæfellsbæjar. Hlutaðeigandi geta óskað eftir kynningu í ráðhúsinu eftir samkomulagi.

Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 22. ágúst 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls númer 412/2024.

Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar