Ókeypis dans- og leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Í vikunni verður dans- og leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga haldið í Frystiklefanum á Rifi. Þátttaka á námskeiðunum er gjaldfrjáls. Skráningu lýkur þriðjudaginn 13. júlí.

Kennt í aldurshópum:

  • 4 - 5 ára
  • 6 - 10 ára
  • 11 - 15 ára
  • 16+ (framhaldsskólaaldur, 10. bekkur líka velkominn)
Skráning og nánari upplýsingar á vefsíðu Listfellsness.