Ólafsvíkurvaka 28. - 29. júní
31.01.2019 |
Fréttir
Leiðrétting: Ólafsvíkurvaka verður 6. - 7. júlí 2019, ekki í lok júní eins og áður kom fram.
Ólafsvíkurvaka verður haldin dagana 28. - 29. júní nk. og verður þetta í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Ólafsvíkurvakan er fyrst og fremst hugsuð sem fjölskylduskemmtun fyrir núverandi og brottflutta íbúa sem vilja koma saman til að hafa gaman í góðra vina hópi. Snæfellsjökulshlaupið verður einnig þessa helgi og því von á fjölmenni í bænum.
Undirbúningsnefnd hátíðarinnar í ár hefur hafið störf og verða birtar fréttir af dagskrá þegar nær dregur.