Opinn kynningarfundur í Röst miðvikudaginn 23. nóvember
21.11.2022 |
Fréttir, Skipulagsmál
Opinn kynningarfundur vegna breytingu aðalskipulags Snæfellsbæjar á tveimur svæðum verður haldinn í félagsheimilinu Röst á Hellissandi miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:00.
Eftirfarandi breytingar verða kynntar á fundinum:
- Breyting aðalskipulags, nýtt deiliskipulag og umhverfismatsskýrsla í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
- Breyting aðalskipulags, nýtt deiliskipulag og umhverfismatsskýrsla fyrir Krossavíkurböð, Hellissandi.
Ný deiliskipulög verða einnig kynnt á fundinum og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingum. Nánar má lesa um hvað felst í breytingunum í frétt á vefsíðu Snæfellsbæjar frá 17. nóvember 2022.
Öll velkomin og áhugasöm hvött til að mæta.